Jæja 
Þá er bara næstum kominn desember og við Lilja höfum
ákveðið að hýfa hvora aðra upp í jólagleði og gefa skít í
jólafæðingarþunglyndið. BLESS JÓLAFÆÐINGARÞUNGLYNDI
Enda sést jólagleðin orðið ágætlega bæði að Biðlundi og Fjólustöðum
(utanfrá allavega). Seríur og læti
Annars lenti ég í
hrottalegri lífsreynslu þegar seríustandið hófst í gær. Þannig er
mál með vöxtum að þegar ég var búin að hengja upp 5 stykki
jólaseríur og sleikja af áfergju hverja eina og einustu sogskál
uppgötvaði ég mér það til hryllings að sogskálapokinn var fullur af
pöddum
Svo ég frysti andskotana
og manaði mig svo upp í
að tína draslið upp úr pokanum og henda svo litlu dauðu skröttunum
í ruslið
En ég skal segja ykkur það að ekki fleiri
sogskálar voru sleiktar né verða þetta árið. Svo fattaði ég það
líka að ég er búin að sleikja þessar sogskálar árum saman (OJ) og
ætti sennilegast að vera dauð úr sogskálasleikibakteríusyndrómi. En
ég læt ekki bugast og held ótrauð í átt að jólum.
Og Lilja mín Ingimundardóttir
þú gætir orðið
jólafrunsulaus þessi jól því hún er hér og ég skal gera mitt besta
til að hún sleppi ekki.
Jólin þau koma bráðuuum.
Fjóla bíður alveg óóóð.
Og
ætlar með ráð'og dáðuuum,
að vera glöð og kát og góóóð.
Byrjuð hún er að skreytaaa,
en
Einar hefur lítið geeert.
Því er ei hægt að breytaaa,
en þykir samt athygliveeert.
Jólin koma sama hvað,
ljósin
eins og mý,
þannig
er nú bara það,
getum ekkert gert í því.
Við skulum því vera happííí,
og njóta þess að líða veeel.
Til fjandans með Havaaííí,
Frónið best ég alltaf teeel.
(passar við rauðnefjaða
apparatið)